Heimildamynd í þremur þáttum

 

Sumarið 1627 komu atvinnusjóræningjar frá Norður-Afríku siglandi til Íslands, herjuðu á strandhéruð, námu á brott um 400 manns og seldu á þrælamarkaði. Margir létust af sjúkdómum fyrstu mánuðina, unga fólkinu var snúið til íslamskrar trúar en um fjörutíu fangar öðluðust frelsi.

Heimildamyndin Tyrkjaránið fjallar um þennan fáheyrða atburð, rekur atburðarásina á Íslandi, segir frá lífinu í herleiðingunni, heimkomu þeirra sem voru leystir út, foringja sjóræningjanna og sköpunarverkum sem spruttu upp úr harmsögunni. Myndin er í þremur hlutum, um 45 mínútur hver. Hún byggist á viðamiklum rannsóknum og er tekin víða um land og í tíu öðrum löndum með þátttöku fjölda fólks, heimamanna, listafólks og fræðimanna.

Á síðunni má finna lýsingar á efni þáttanna þriggja sem myndin skiptist í, sögð eru deili á þeim sem stóðu að gerð hennar. Einnig er greint frá hvaða hugmyndir lágu að baki og sagt er frá hvaðan vitneskjan kemur og hverjir aðrir hafa fengist við Tyrkjaránið á Íslandi.