| Myndavefur
::: Ítalía 3 / San Marinó o.fl. |
 |
|
 |
|
:::
Á Imola
11. apríl 2003
Á föstudeginum tókum við bílaleigubíl
og stefnan sett á Imola og San Marínó. Við
keyrðum fyrst eftir sveitavegi sem liggur á hinni fornu
rómversku leið – Via Æmilia. Á leiðinni
heim um kvöldið keyrðum við um háskalegar
hraðbrautir en óhætt er að fullyrða að
ítalskir ökumenn séu brjálaðir.
Það var því kannski viðeigandi
að heimsækja Imola-kappakstursbrautina þar sem San
Marínó kappaksturinn er haldinn ár hvert. Imola
er þó alls ekki í San Marínó.
Á myndinni eru pabbi og mamma með upphafsstað og
endamark brautarinnar í baksýn. Við stóðum
þarna á opnu áhorfendastæði og eftir
stutta heimsókn kom í ljós að jarðvegurinn
var hræðilegur. Við það að labba um
svæðið rótuðum við upp leðju og
eyðilögðum næstum skóna okkar. Við
þurftum að eyða góðum tíma í
að hreinsa þá áður en við stigum
aftur í bílaleigubílinn.
|
 |
|
Upp |
 |
|
::: Í "funiviu"
upp í San Marinó
11. apríl 2003
San Marinó er sjálfstætt smáríki
mitt á Ítalíuskaganum. Ríkið er
61 km2, byggt á nokkrum hæðum. Höfuðborgin
ber sama nafn og stendur á hæstu hæðinni,
hinu ósigrandi Títanfjalli. San Marinó var
dæmigert borgríki á miðöldum og tókst
nær yfirleitt að verja sjálfstæði sitt
gegn atlögum hertoga og konunga. Þegar Ítalía
sameinaðist á seinni hluta 19. aldar tókst íbúum
borgríkisins að semja um sjálfstæði
sitt og hefur haldið því síðan. Um 26
þúsund íbúar kjósa sér
60 manna þing á fimm ára fresti en síðan
eru valdir tveir ríkisstjórar sem hafa stjórn
með höndum sex mánuði í senn.
Það er hægt að komast á
bíl upp að borgarmörkunum á Títan-fjalli
en það er öllu skemmtilegra að leggja neðar
og fara upp með kláfi – funiviu – eins og
það heitir á ítölsku. Sigurveigu þótti
þetta frábært og var þessi ferð upp
og niður meðal þess sem henni fannst skemmtilegast
í allri ferðinni og funivia eina ítalska orðið
sem hún vildi læra.
|
 |
|
Upp |
 |
|
::: Feðginin í skýjunum
11. apríl 2003
Sigurveig og pabbi með einstakt útsýni
í baksýn. Við vorum mjög heppin með veður
og því gátum við séð í
hæðirnar í kring og út á Adríahaf.
Rétt hjá San Marinó er hinn kunni sumarleyfisstaður
Rimini en þaðan hafa ýmsir Íslendingar komið
til að heimsækja forna borgríkið.
|
 |
|
Upp |
 |
|
::: Stjórnarbyggingin
11. apríl 2003
Hér má sjá aðalstjórnarbyggingu
San Marinó. Það er rétt að nefna að
San Marinó er sjöunda landið sem Sigurveig heimsótt
eða dvalist í. Hin eru Danmörk, Spánn (Mallorca),
Portúgal, Þýskaland, Ítalía og
auðvitað Ísland. |
 |
|
Upp |
 |
|
::: Á Ferrari-safninu
í Maranello
12. apríl 2003
Á safninu í heimabæ Ferrari mátti
meðal annars sjá dæmigert brautarskýli Ferrari-liðsins
með öllum græjum. Þar mátti einnig sjá
Ferrari-bíla frá ýmsum tímum, bikara,
endurgerð af skrifstofu Enzos Ferraris. Ein hæð var
tileinkuð tækni, vélum og dekkjum og loks var hægt
í einum sal að prófa Ferrari simulator. |
 |
|
Upp |
 |
|
::: Gamli og nýi tíminn
12. apríl 2003
Aftari bíllinn er frá 1989 en sá
fremri er af 2001 árgerðinni, sem vann Formúlu
1 það árið.
|
 |
|
Upp |
 |
|
::: Einn af þeim elstu
12. apríl 2003
Sigurveig við einn af þeim elstu sem Enzo
Ferrari smíðaði. Bíllinn var smíðaður
árið 1951.
|
 |
|
Upp |
 |
|
::: Fékk að prófa
12. apríl 2003
Sigurveig fékk að prófa Ferrari!
Reyndar var þetta Ferrari-leiktæki en hún skemmti
sér vel engu að síður.
|
 |
|
Upp |
 |
|
:::
Gott að fá sér sopa
13. apríl 2003
Eftir góðan göngutúr er gott
að fá sér vatnssopa. |
| |
|
Upp |
 |
|
:::
Turnarnir tveir
13. apríl 2003
Áður fyrr prýddu tugir turna Bologna.
Rígur milli leiðandi fjölskyldna í borginni
leiddi til samkeppni í turnabyggingu. Aðeins tveir þeirra
standa enn og eru báðir rammskakkir. Annar þeirra
Torre degli Asinelli er 97 metra hár en hinn Torre Garisenda
er 47 metra hár. Þessir turnar eru jafnan taldir eitt
helsta kennileiti borgarinnar. |
| |
|
Upp |
 |
|
:::
Sjáðu hvað ég er fín
13. apríl 2003
Sigurveig sýnir jafnvægislist sína
en hún stendur þarna upp á steini. Eins og sjá
má er hitinn kominn í eðlilegt horf og hægt
að vera í kjól úti. |
| |
|
Upp |
 |
|
:::
Á svölunum hjá afa og ömmu
13. apríl 2003
Sigurveig gat leikið sér svolítið
á svölunum heima hjá afa og ömmu í
Bologna. |
 |
|
Upp |
| Ítalía
1 – Ítalía
2 – Ítalía 3 |
|
|