Myndavefur fjölskyldunnar
::: myndir frÁ DanmÖrku
Myndavefur ::: Sigurveig byrjar í skóla  
 

::: Mappan skreytt
6. ágúst 2003

Sigurveig að skreyta möppuna sína með Barbie-límmiðum. Allt var undirbúið kvöldið fyrir fyrsta skóladag. Í gær fór fjölskyldan að kaupa síðustu hlutina í skólatöskuna og pennaveskið svo allt yrði klárt fyrsta skóladaginn.

  Upp
 

::: Nývöknuð og spennt
7. ágúst 2003

Hvaða myndatökur eru þetta svona eldsnemma um morguninn? Þarna er Sigurveig að gera klárt í skólatöskuna. Nestisboxið komið ofan í og vatnsbrúsinn líka.

  Upp
 

::: Tilbúin!
7. ágúst 2003

Það er kominn tími til að leggja af stað í skólann. Skólataskan komin á bakið og búið að spenna yfir magann. Það eru fiðrildi sem skreyta skólatöskuna og það eru örugglega líka fiðrildi í maganum á Sigurveigu.

  Upp
 

::: Hjólað í skólann
7. ágúst 2003

Auðvitað er hjólað í skólann en annað hvort pabbi eða mamma fylgja alltaf með. Fyrsta skóladaginn fór öll fjölskyldan saman enda búið að bjóða pabba og mömmu með.

  Upp
 

::: Komin í Rødovre Skole
7. ágúst 2003

Fyrir utan aðalhliðið við Rødovre Skole. Við fengum aðstoð við myndatökuna eins og ljóst má vera.

  Upp
 

::: Fyrsta kennslustundin
7. ágúst 2003

Þá er maður sestur í sína fyrstu kennslustund á langri skólagöngu. Það eru allavega tíu ár í fyrsta áfanganum! Sessunautur Sigurveigar fyrst um sinn er Khalid.

  Upp
 

::: Velkommen i O.C
7. ágúst 2003

Börnin voru boðin velkomin í bekkinn sinn en fyrsti skóladagurinn var nú ekki langur.

  Upp
 

::: Sungið og trallað
7. ágúst 2003

Strax á fyrsta degi lærðu krakkarnir í O.C skemmtilegt lag um ljón í Afríku. Það er umsjónarkennari bekkjarins, hann Bjarne, sem spilar undir á gítarinn.

  Upp
 

::: Glöð skólastelpa
7. ágúst 2003

Eftir fyrsta skóladaginn var kominn tími á að leika sér á skólaleikvellinum. Eftir skólann er Sigurveig á skóladagheimili en það heitir víst SFO í Danmörku.

  Upp
Nýtt
2003
2002
Tenglar